Hafðu fiðrildaáhrif
Gaman og fróðlegt hér í Boston en vont að komast ekki í Fiðrildagönguna í Reykjavík í kvöld. Ég skora á alla, konur og kalla, að slást í för með þeim djörfu konum í BAS-hópnum og UNIFEM. Hugarvængjum sem blakað er á Fróni geta haft áhrif í fjarlægum heimshlutum.
The Butterfly Effect works!
Gangan er hluti af Fiðrildavikunni sem ætlað er að efla vitund okkar um bága stöðu kvenna á stríðshrjáðum svæðum þar sem nú er ekki aðeins barist um landssvæði heldur einnig lendar kvenna.
Látum ekki draga víglínuna þvert yfir kvenlíkamann! Burt með kynbundið ofbeldi!
Fiðrildagangan hefst á horni Frakkastígs og Laugavegs klukkan 20.00. Gengið verður niður á Austurvöll. Og örugglega til góðs.
Sjálf mun ég gera mitt besta til að sanna kenninguna um fiðrildáhrifin héðan frá Boston.

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home